Manchester United fylgist vel með Nikola Milenkovic, miðverði Fiorentina á Ítalíu.
Enska liðið vill sækja miðvörð fyrir sumarið og gæti Serbinn verið lausnin.
Samningur hins 24 ára gamla Milenkovic í Flórens rennur út eftir næstu leiktíð. Það eru því góðar líkur á að Fiorentina vilji selja leikmanninn í sumar til þess að koma í veg fyrir að hann yfirgefi félagið á frjálsri sölu sumarið 2023.
Milenkovic hefur spilað 24 leiki með Fiorentina í Serie A á þessari leiktíð.