Ítalski knattspyrnudómarinn Diana Di Meo hefur opinberað það að hún sé fórnarlamb hefndarkláms. Hún segir einkamyndum og myndböndum af sér hafa verið stolið og þær síðan birtar á samfélagsmiðlum.
Diana greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum en hún segist hafa tilkynnt málið til lögreglu og málið sé þar til rannsóknar. Ekkoi er vitað á þessari stundu hverjir þjófarnir eru en þeir gætu átt yfir höfði sér sex ára fangelsi.
,,Þetta eru myndir og myndbönd í einkaeign sem hefur verið stolið af mér. Einhverjum hlýtur að hafa tekist að komast yfir síma minn, annars hef ég ekki hugmynd um það hvernig þeim var stolið,“ sagði Diana í myndbandi sem hún birti á Instagram.
Diana segist vonast til þess að ákvörðun sín um að greina frá þessu og tala um stöðuna opinberlega, hvetji aðrar konur í sömu stöðu til þess að gera það sama.
,,Ég er hér að tala um þetta en margar af okkur geta það ekki og eru í felum með þetta. Ég vonast til þess vera rödd allra fórnarlamba hefndarkláms sem finna fyrir sektarkennd, raunveruleikinn er sá að skömmin liggur hinum megin við borðið.“