Síminn Sport mun sýna alla 380 leiki ensku úrvalsdeildarinnar á næstu leiktíð. Tómas Þór Þórðarson sagði frá þessu á Twitter fyrir stuttu.
Hann segir jafnframt að farið verði aftur í ,,gamla farið“ þegar kemur að því hvenær leikirnir eru á dagskrá. Það er að nokkrir leikir munu hefjast á sama tíma klukkan 15 á laugardögum. Á síðustu leiktíð voru nánast allir leikir á mismunandi tíma svo fleiri gætu séð þá í sjónvarpi. Það var gert þar sem fólk komst ekki á völlinn vegna kórónuveirufaraldursins.
Enska úrvalsdeildin hefst þann 13. ágúst. Færslu Tómasar má sjá hér fyrir neðan.
Premier League hefur staðfest við Síminn Sport að við megum sýna alla 380 leikina á næstu leiktíð. Farið verður aftur í gamla góða kick off slot formatið, samt sem áður. Við fáum því alltaf nokkra leiki á sama tíma kl. 15. á laugardögum. Veislan hefst 13. ágúst.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) July 7, 2021