Jón Þór Hauksson hefur verið ráðinn þjálfari Vestra í Lengjudeildinni út tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta. Jón Hálfdán Pétursson verður honum til aðstoðar.
Vestri hefur verið í leit að þjálfari síðan Heiðar Birnir Torleifsson hætti á dögunum.
Jón Þór starfaði síðast sem A-landsliðsþjálfari kvennaliðs Íslands. Hann sinnti því starfi þar til í lok síðasta árs.
Vestri er í sjötta sæti Lengjudeildarinnar með 16 stig. Öll lið deildarinnar hafa leikið helming leikja sinna.
Jón Þór Hauksson tekur við Vestra með Jón Hálfdán sér við hlið! @ Olísvöllurinn https://t.co/hpePDnRWoF
— Vestri – Fótbolti (@VestriF) July 15, 2021