Oli McBurnie framherji Sheffield United hefur verið handtekinn vegna árásar á mann á götu úti um helgina. Greint var frá árásinni í gær og lögreglan hefur gengið í málið.
Elliott Wright sem er 21 árs og varð fyrir árásinni tilkynnti hana til lögreglu í gær.
Myndband af McBurnie að ráðast á mann fór á veraldarvefinn í gær. Þar sést McBurnie ráðast á Elliott síðasta laugardagskvöld. Samkvæmt enskum blöðum var maðurinn að gera grín að McBurnie fyrir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni.
Framherjinn var brjálaður við það en atvikið átti sér stað í Knaresborough í Norður Jórvíkurskíri. Framherjinn sló síma mannsins úr höndum hans og réðst svo á hann.
Maðurinn var með skurð í andliti og glóðarauga eftir högg frá McBurnie.
McBurnie hefur átt erfitt uppdráttar hjá Sheffield en félagið keypti hann sumarið 2019 fyrir 20 milljónir punda (3,5 milljarða íslenskra króna) og gæti nú átt yfir höfði sér kæru vegna líkamsárásar.
Is this the first time @oli_mcburnie has had a strike on target all season? pic.twitter.com/C0Lsp3JhK4
— Chris (@Nomadicscotsman) May 10, 2021