Brescia tók á móti Cosenza í ítölsku B-deildinni í kvöld. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Brescia en leikið var á heimavelli liðsins, Stadio Mario Rigamonti.
Birkir Bjarnason kom inn í liði Brescia á 46. mínútu. Þremur mínútum síðar hafði hann komið Brescia yfir með marki eftir stoðsendingu frá Filip Jagiello.
Florian Aye innsiglaði síðan 2-0 sigur Brescia með marki á 79. mínútu eftir stoðsendingu frá Antonino Ragusa.
Brescia er eftir leikinn í 14. sæti með 30 stig eftir 26 leiki.
Brescia 2 – 0 Cosenza
1-0 Birkir Bjarnason (’46)
2-0 Florian Aye (’79)