Dino Drpic, króatískum knattspyrnumanni, var árið 2009 bolað burt frá félagi sínu, Dinamo Zagreb, fyrir það að stunda kynlíf á miðjum heimavelli félagsins. Daily Star fjallaði um það nýlega að þetta hafi verið ástæða félagaskipta hans til þýska félagsins Karlsruher á sínum tíma.
Á þessum tíma var eiginkona hans Playboy-fyrirsætan Nives Celsius. Sváfu þau saman á miðjum Maksimir vellinum, sem við Íslendingar þekkjum vel frá því að mæta króatíska landsliðinu í hinum ýmsu unndankeppnum og umspilum.
Fréttirnar dreifðust hratt og voru menn hjá Dinamo svo ósáttir að ákveðið var að losa Drpic frá félaginu.
Talað er um að Drpic hafi skipulagt athæfið vel. Hann hafi til að mynda fengið einhvern til að kveikja ljósin á vellinum fyrir sig.
Drpic er fertugur í dag. Hann lék síðast knattspyrnu með Savski Marof í heimalandinu. Hann fór frá félaginu í fyrra.