fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Segir ákvörðun Arnars og Eiðs Smára á þriðjudag skrýtna – „Það er ekkert eðlilegt við þetta“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 25. mars 2021 08:47

© 365 ehf / Vilhelm Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti talsverða athygli þegar af því bárust fréttir í vikunni að Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarmaður hans hefðu tekið fullan þátt í æfingu íslenska landsliðsins í Þýskalandi.

Íslenska liðið hefur leik í undankeppni HM í kvöld þegar liðið mætir Þýskalandi á útivelli. Á þriðjudag, tveimur dögum fyrir leik tóku þjálfarar liðsins þátt í æfingu liðsins. Lars Lagerback stýrði þá æfingunni. „Þjálfararnir Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen tóku hinsvegar báðir þátt í æfingunni í dag sem leikmenn, Eiður Smári mun meira,“ sagði í frétt Fótbolta.net um málið.

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu

Málið var rætt í hlaðvarpsþættinum, Dr. Football í gær. „Það er ekkert eðlilegt við þetta, þeir hefðu bara getað boðað fleiri í hópinn. Menn sem eru í formi og vinna við að spila fótbolta,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis var einnig í þættinum og hann segir að margir hafi furðað sig á þessu. „Ég hoppa í reit af og til þegar ég er í stuði, mér fannst þetta mjög skrýtið. Þetta stakk marga í augun ,“ sagði Sigurður Heiðar.

Arnar og Eiður Smári áttu frábæra ferla sem leikmenn og voru lengi vel í stóru hlutverki í íslenska landsliðinu, Eiður Smári er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og Arnar átti mjög svo farsælan feril í Belgíu.

Arnar Þór, Eiður Smári og Lagerback eru að stýra sínum fyrsta leik saman í kvöld en leikurinn hefst 19:45 í Þýskalandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi