
Í kvöld fer fram leikur Íslands og Þýskalands í undankeppninni fyrir HM karla í Katar. Um er að ræða fyrsta leikinn í undankeppninni.
Nú hefur verið greint frá því að leikmaður Þýskalands hafi greinst með Covid-19 veiruna og er því ekki víst hvort landsleikurinn í kvöld verði spilaður.
Jonas Hofmann, sem spilar með Borussia Mönchengladbach í þýsku úrvalsdeildinni, sá sem smitaður er af veirunni. Þá segir einnig í frétt Bild að leikmenn landsliðsins megi ekki fara út úr herbergjum sínum. Talið er líklegt að leikmenn verði skimaðir hraðar vegna þessa á næstunni.