Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Everton, líður vel hjá félaginu og vill vera eins lengi hjá félaginu og hann getur.
Framundan eru spennandi tímar hjá Everton en á næstu árum mun félagið flytja yfir á nýjan völl sem mun geta tekið við 52,888 stuðningsmönnum.
Ancelotti gerði á sínum tíma fjögurra ára samning við Everton og hefur nú verið 14 mánuði hjá félaginu.
„Ég vil vera hér þegar við flytjum yfir á nýja völlinn ég vil að árið 2024 þegar samningur minn renni út hafi ég skilað góðu verki og ef ég hef skilað góðu verki þá mun vera mín hjá félaginu lengjast,“ sagði Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Everton.
Everton er sem stendur í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og á raunverulegan möguleika á Evrópusæti. Liðið hefur unnið 12 af sínum 24 leikjum í deildinni og ánægja er með störf Ancelotti hjá félaginu.