The Athletic greinir frá því í dag að Juventus hafi reynt að fá Mason Greenwood frá Manchester United í fyrra.
Greenwood er aðeins 18 ára gamall en hann er að festa sig vel í sessi á Old Trafford.
Framherjinn hefur skorað 15 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og gerði nýjan fjögurra ára samning árið 2019.
The Athletic segir að Juventus hafi reynt við Greenwood í fyrra og boðið honum risaupphæð fyrir að semja.
Það var þó alltaf vilji Greenwood að spila fyrir United og ákvað hann að vera um kyrrt.