Stuðningsmenn Liverpool eru orðnir þreyttir á biðinni en félagið er hænuskrefi frá því að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 30 ár.
Enska úrvalsdeildin fór í pásu í mars vegna kórónuveirunnar en vonir standa til að hún fari aftur af stað í júní.
Ljóst er að ef deildin fer af stað að Liverpool verður meistari en ekki er öruggt að deildin fari í gang.
Stuðningsmenn Liverpool í Taílandi nenna ekki að bíða lengur og leigðu sér stóra bíla til að fagna titlinum. Þeir rúntuðu saman og fögnuðu.
Mynd af þessu má sjá hér að neðan.