Það er búið að fresta tveimur stórleikjum sem áttu að fara fram í Meistaradeildinni í næstu viku.
Um er að ræða leiki Manchester City og Real Madrid sem og viðureign Juventus og Lyon.
Það er að sjálfsögðu kórónaveirunni að kenna en UEFA hefur tekið ákvörðun um að leikirnir fari ekki fdram.
Leikmenn Real Madrid eru í sóttkví eftir að leikmaður körfuboltaliðs félagsins greindist með veiruna.
Daniele Ruganik, leikmaður Juventus, er þá einnig með veiruna og þurfa leikmenn þess liðs einnig að fara í sóttkví.