Manchester United býst við því að missa miðjumanninn Paul Pogba næsta sumar samkvæmt fregnum dagsins.
Nokkrir miðlar greina frá þessu en Pogba hefur ekkert spilað síðustu vikur vegna meiðsla.
Umboðsmaður leikmannsins Mino Raiola er í orðastríði við Ole Gunnar Solskjær, stjóra United, en það hefur gengið á síðustu daga.
Pogba er sjálfur opinn fyrir því að yfirgefa United en verðmiðinn hræðir flest félög.
Þessi 26 ára gamli leikmaður er mættur aftur til æfinga hjá United en hann æfði einn í æfingaferð í Dubai nýlega.
United er að búast við því að selja Pogba í sumar en hann ku ekki hafa góð áhrif á andrúmsloftið þessa stundina.