Boutique Baller er verslun í Englandi þar sem ríka og fræga fólkið mætir og verslar merkjavöru í friði, verslunin opnaði á dögunum og virðist höfða vel til knattspyrnumanna.
Ensk blöð segja að knattspyrnumenn séu duglegir að líta þarna við, þeir greiða 100 pund á mánuði til að hafa aðgang að versluninni. Frægt fólk í Bretlandi nýtir sér þetta, óspart.
Verslunin er lokuð almenningi en hún hefur alla helstu merkjavöru sem knattspyrnumenn og frægt fólk er að leita að. Þarna má finna merki eins og Supreme, Louis Vuitton og Christian Louboutin.
Á meðan verslað er er hægt að drekka kampavín og fara í tölvuleiki en verslunin þjónar aðeins sterk efnuðu fólki. Verslunin er staðsett í London.