fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
433Sport

Háttsettir menn hjóla í Mourinho: „Við höfum fundið fleiri fávita“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 8. apríl 2020 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn Tottenham eru ekki sáttir með Jose Mourinho, eftir að hann sást með leikmönnum félagsins á æfingu í gær. Mourinho hitti nokkra leikmenn félagsins í almenningsgarði og er það bannað, útgöngubann er á Englandi.

Mourinho hitti Davinson Sanchez, Ryan Sessegnon, Tanguy Ndombele í garðinum og lét þá æfa. Möguleiki er á því að Mourinho fái sekt fyrir þessa hegðun sína

,,Við höfum fundið fleiri fávita,“ sagði Piers Morgan, einn frægasti sjónvarpsmaður Bretlands á ITV í morgun. Honum er ekki skemmt.

,,Hvað ertu að hugsa Mourinho? Hvað eru þessir leikmenn að hugsa?.“ Tottenham er umdeilt nú þegar eftir að félagið setti starfsfólk sitt á bætur hjá ríkinu.“

,,Núna sjáum við svo leikmenn og þjálfara æfa saman, þessi æfing var ekki samþykkt af félaginu.“

Sadiq Khan, borgarstjóri í London er einnig ansi reiður. ,,Mitt vandamál er að þeir eiga að setja gott fordæmi, núna eru ungir stuðningsmenn Tottenham sem sjá þetta. Þeir hugsa, af hverju geta þeir eitthvað sem okkar er bannað.“

,,Þetta er svo mikilvægt, þess vegna er þetta viðtal tekið í gegnum Skype. Ég hef ekki farið af heimili mínu í þrjár vikur. Það er hægt að vinna að heiman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert atvik í gær – Stjörnur Liverpool virtust flissa að leikmanni Arsenal

Sjáðu athyglisvert atvik í gær – Stjörnur Liverpool virtust flissa að leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Högg fyrir Arsenal sem skoðar nú markaðinn

Högg fyrir Arsenal sem skoðar nú markaðinn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bræður takast á í Laugardalnum – „Hann er alltaf að reyna að komast inn í hausinn á mér“

Bræður takast á í Laugardalnum – „Hann er alltaf að reyna að komast inn í hausinn á mér“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sýnir ótrúlegar breytingar eftir húðþrengjandi meðferð – Greinir frá ástæðunni

Sýnir ótrúlegar breytingar eftir húðþrengjandi meðferð – Greinir frá ástæðunni