fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
433Sport

Þrír magnaðir framherjar berjast um titilinn um að vera sá besti – Svona er tölfræðin

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 17. nóvember 2025 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttan um titilinn sem besti framherji heims hefur harðnað verulega á þessari leiktíð, þar sem Harry Kane, Erling Haaland og Kylian Mbappé hafa allir verið í frábæru formi hjá landsliðum sínum og félagsliðum.

Kane og Haaland skoruðu báðir tvö mörk í gærkvöldi þegar England og Noregur tryggðu sér toppsæti í sínum riðlum í undankeppni HM. England fór í gegnum riðilinn með fullu húsi stiga og fékk ekki á sig mark í átta leikjum eftir 2-0 sigur á Albaníu, á meðan Noregur kláraði mótið með 4-1 sigri á Ítalíu.

Mbappé tryggði Frakklandi sæti á HM með tveimur mörkum í síðustu viku, áður en hann dró sig úr lokaumferðinni vegna meiðsla. Þríeykið er nú þegar talið meðal helstu kandídata í Ballon d’Or á næsta ári.

Samkvæmt tölum þessa tímabils er Haaland fremstur. Hann er með 1,33 mörk úr opnum leik á hverjar 90 mínútur, Kane fylgir á eftir með 1,02 og Mbappé með 0,86. Með vítum væri Kane efstur þar sem hann hefur skorað sjö sinnum af punktinum.

Getty Images

Að mati margra gerir styrkur ensku úrvalsdeildarinnar afrek Haaland enn áhrifameiri. Hann hefur skorað fjögur mörk í fjórum leikjum gegn „Big Six“ og blandað saman ótrúlegum hraða og líkamlegum styrk sem fáir geta jafnað.

Kane er talinn með betri leikskilning, sendingar og varnarvinnu. Mbappé er sterkastur með boltann á hraðanum á meðal þeirra þriggja.

En þegar markaskorun er talin mikilvægasta viðmiðið, er niðurstaðan skýr: með 32 mörk fyrir félag og þjóð, er Erling Haaland besti framherji heims í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Slot staðfestir fund með Mo Salah í dag – Þar kemur í ljós hvernig framhaldið verður

Slot staðfestir fund með Mo Salah í dag – Þar kemur í ljós hvernig framhaldið verður
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrrum þjálfari hjá United skilur ekki af hverju Amorim þori ekki að prófa þetta

Fyrrum þjálfari hjá United skilur ekki af hverju Amorim þori ekki að prófa þetta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Vilja kaupa fyrrum miðjumann Arsenal í janúar

Vilja kaupa fyrrum miðjumann Arsenal í janúar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kveður Kóreu eftir góð ár og vill komast aftur til Englands

Kveður Kóreu eftir góð ár og vill komast aftur til Englands
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Kostulegt atvik í beinni – Haaland skíthræddur við Carragher

Kostulegt atvik í beinni – Haaland skíthræddur við Carragher
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Tvö félög hætta að selja nautaborgara til að minnka kolefnissporið

Tvö félög hætta að selja nautaborgara til að minnka kolefnissporið
433Sport
Í gær

United vill fleiri ungstirni – Fá samkeppni frá Atletico og Bayern um leikmann frá Ekvador

United vill fleiri ungstirni – Fá samkeppni frá Atletico og Bayern um leikmann frá Ekvador
433Sport
Í gær

Tólf félög vilja Mainoo en hann er búinn að velja

Tólf félög vilja Mainoo en hann er búinn að velja