Anthony Martial, framherji Manchester United var ekki leikfær í gær er liðið mætti Club Brugge í Evrópudeildinni. Framherjinn var með verk í hné.
Martial fer í myndatöku í dag en Ole Gunnar Solskjær vonast til að hafa framherjann heilan heilsu á sunnudag er liðið heimsækir Everton.
Ef Martial nær ekki heilsu er ansi líklegt að Odion Ighalo, leiði línuna í Guttagarði. ,,Ég veit ekki hvort Anthony geti spilað,“ sagði Solskjær.
,,Ég hef ekki spurt hann, reyndi að æfa í gær svo þetta er ekki mjög alvarlegt.“
Án Marcus Rashford er mikilvægi Martial mikið og því ljóst að United mun gera allt til þess að koma honum í stand.
Small update from Solskjaer on Martial, who will have a scan today on knee issue. "Odion is ready for that game on Sunday. I don't know about Anthony, to be honest. I've not asked. He tried [yesterday] morning so he wasn't that bad." #MUFC
— Laurie Whitwell (@lauriewhitwell) February 28, 2020