A landslið karla kom til Los Angeles í Bandaríkjunum á laugardag, þar sem liðið verður við æfingar næstu daga og leikur tvo vináttuleiki – fyrst gegn Kanada miðvikudaginn 15. janúar og síðan gegn El Salvador sunnudaginn 19. janúar.
A landslið karla er þessa dagana við æfingar í Los Angeles og er æft á svæði LA Galaxy liðsins, sem leikur í bandarisku Major League deildinni.
Hér er myndasyrpa frá æfingu gærdagsins.