Ragnar Sigurðsson, skoðar öll þau tilboð sem eru á borði hans en varnarmaðurinn er eftirsóttur.
Ragnar fékk samningi sínum við Rostov rift á dögunum, hann vildi komast burt frá Rostov og félagið gaf grænt ljós á það.
Ragnar er með nokkur góð tilboð frá Tyrklandi og þar getur hann fengið vel í aðra hönd.
Ragnar er hins vegar einnig með tilboð frá FCK í Kaupamannahöfn, þar hefur hann spilað áður og leið vel í kóngsins Köben.
Danskir miðlar tala um að Ragnar velji nú á milli þess að moka inn peningum eða snúa heim til FCK, þar sem hann fær minna borgað en gæti verið sáttari með lífið.
FC København står klar med en kort kontrakt, når Ragnar Sigurdsson har besluttet, om han vil sige nej til mange tyrkiske lønkroner. Det ville ikke overraske mig, hvis han vælger den mindre kontrakt i København https://t.co/Ow5D2iHiaU
— Michel W Davidsen (@michelwd) January 8, 2020