Emil Hallfreðsson er án félags þessa dagana en leitar sér að nýju félagi, hann velur draumalið sitt í þætti sem Jóhann Skúli er með.
Emil hefur verið einn besti leikmaður íslenska landsliðsins síðustu ár en hann hefur að mestu spilað á Ítalíu, á ferlinum.
Hann ræðir þar um dvöl sín hjá Malmö árið 2006 en hann kom til félagsins að láni frá Malmö. „Það lýsir því kannski best að í janúar á undirbúningstímabilinu fórum við í æfingaferð til Suður-Afríku án bolta. Við vorum að hlaupa og lyfta í tíu daga í einhverjum frumskógum,“ sagði Emil og ræddi þar um Sören Åkeby, sem þá var þjálfari liðsins
„Þetta er klárlega ekki besta fótboltaþjálfari sem ég hef haft,“ sagði Emil en félagið fór í æfingaferð til Suður-Afríku, það var eftirminnileg ferð.
„Þetta er ein steiktasta æfingaferðin. Þeir tóku ekki boltanet með. Hann var fyrrum slökkviliðsmaður og hann vildi við byrjuðum tímabilið þarna.“
Þegar Emil ætlaði að kasta af sér þvagi, þá var hætta á að ljón myndi ráðast á hann.
„Við sváfum í tjöldum og það var vörður fyrir utan. Það var ekki klósett í tjöldunum svo ef þú þurftir að pissa þá þurfti gaurinn að fara með þér því annars hefði ljón getað komið. Þetta er sönn saga.“
MOZZARELLA, MORTADELLA, MIT NUTELLA???
Þakka @EmmiHall kærlega fyrir að hafa gefið sér tíma til þess að kíkja á mig og ræða Draumaliðið sitt með mér. Gæði, glæsimenni og geggjaðir karakterar, það má enginn missa af þessum. https://t.co/hGBJRqbwCz— Jói Skúli (@joiskuli10) September 20, 2019