Ryan Giggs, þjálfari Wales og fyrrum stjarna hjá Manchester United hefur fundið ástina á nýjan leik. Kærastan hans er 15 árum yngri.
Helen Stelling Holt er ný unnusta Giggs en hún er þrítugur plötusnúður og fyrirsæta. Giggs er 45 ára gamall. Helen hefur starfað talsvert fyrir Manchester United, hún hefur verið að spila tónlist á viðburðum sem félagið stendur fyrir.
,,Hún er góð stúlka, hún hefur mikinn áhuga á líkamsrækt eins og Ryan,“ segir heimildarmaður enskra baða.
Helen sér um málefni fyrir Menagerie veitingastaðinn í Manchester, sem er vinsæll á meðal ríka og fræga fólksins í Manchester. Þar var hún með Giggs á dögunum, þau voru einnig saman á leik Manchester United og Partizan í síðustu viku.
Giggs hefur því fundið ástina á nýjan leik en hann skildi við eiginkonu sínu til margra ára, hann hélt reglulega framhjá henni. Meðal annars svaf hann hjá eiginkonu, bróður síns. Mikið var fjallað um málið fyrir nokkrum árum.
Myndir af Helen eru hér að neðan.