Paul Pogba mun án nokkurs vafa yfirgefa Manchester United næsta sumar, ef liðinu mistekst að komast í Meistaradeild Evrópu.
United er ekki í deild þeirra bestu í ár og fátt bendir til þess að lærisveinar Ole Gunnar Solskjær verði þar á næsta ári.
Solskjær og félagar eru í veseni en Pogba er meiddur og verður áfram frá næstu vikur. Real Madrid og Juventus hafa áhuga á að fá hann.
Javier Ribalta, fyrrum yfirnjósnari Juventus og félagi Pogba er öruggur á því að miðjumaðurinn vilji fara aftur til Juventus. ,,Ég myndi veðja pizzu við félaga minn að Pogba mætir aftur,“ sagði Ribalta.
,,Án Meistaradeildarinnar þá fer Paul frá Manchester United.“