Það eru fjórir leikmenn Manchester City sem komast í lið helgarinnar hjá the BBC á Englandi.
City vann flottan 2-0 útisigur á Crystal Palace á laugardag en liðið spilaði oft á tíðum glimrandi fótbolta.
Marcus Rashford kemst einnig í liðið en hann skoraði eina mark Manchester United gegn Liverpool í gær.
Callum Hudson-Odoi er þá í framlínunni en hann lék með Chelsea í 1-0 sigri á Newcastle.
Hér má sjá liðið.