Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, gæti fengið tækifæri í fyrsta deildarleik liðsins í dag gegn Celta Vigo.
Bale var lengi orðaður við brottför í sumar en nú er útlit fyrir það að hann verði með liðinu í vetur.
Eden Hazard, nýjasta stjarna Real, meiddist á dögunum og verður frá keppni í allt að fjórar vikur.
Það gefur Bale líflínu hjá Real en Hazard mun missa af fyrstu leikjum Real í deildinni.
Belginn er að glíma við meiðsli í læri þessa stundina og gæti Bale því byrjað fyrsta leik tímabilsins.