Eiturlyfjanotkun í kringum leiki í enskum fótbolta hefur aukist, þetta er mat áhorfanda sem eru á leikjum.
Stuðningsmenn Crystal Palace virðast nota eiturlyf mest, ef marka má könnun sem var gerð á meðal stuðningsmanna í enskum fótbolta.
33 prósent af þeim sem heimsækja leiki Palace hafa séð aðila taka eiturlyf á leikjum.
26 prósent sem sækja leiki Celtic hafa séð eiturlyf, hjá Liverpool hafa 10 prósent þeirra sem heimsækja leiki, orðið vitni að notkun eiturlyfja.
Iðulega er um að ræða kókaín sem er vinsælasta eiturlyf í heimi. Tölfræði um þetta er hér að neðan.