Fulham 1-2 Liverpool
0-1 Sadio Mane(26′)
1-1 Ryan Babel(74′)
1-2 James Milner(víti, 81′)
Liverpool vann sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið heimsótti Fulham í hörkuleik.
Það var boðið upp á spennandi leik á Craven Cottage þar sem Liverpool hafði betur, 2-1.
Sadio Mane skoraði fyrsta mark leiksins á 26. mínútu og var staðan þannig þar til í síðari hálfleik.
Ryan Babel jafnaði þá metin fyrir Fulham gegn einmitt gamla liðinu sínu, Liverpool.
Það var svo James Milner sem tryggði Liverpool stigin þrjú með marki úr vítaspyrnu og fara þeir rauðu á toppinn og eru tveimur stigum á undan Manchester City.