Arnþór Ari Atlason gerði í dag þriggja ára samning við HK en félagið staðfesti komu hans nú rétt í þessu.
Arnþór er 25 ára gamall miðumaður en hann spilaði síðast með Breiðabliki í Pepsi-deildinni.
HK hafði mikinn áhuga á að næla í Arnþór sem lék með Fram áður en hann fór í Kópavoginn.
HK mun spila í Pepsi-deildinni í sumar en liðið tryggði sér sæti þar á síðustu leiktíð.
Arnþór spilaði 18 leiki í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og lék tæplega 100 leiki fyrir Blika.