Wayne Rooney segir að Jurgen Klopp og Pep Guardiola séu að hjálpa enska landsliðinu að ná árangri.
Hann telur að þjálfarar sem hjálpi leikmönnum að skilja leikinn betur geri mikið.
Rooney mun í kvöld kveðja enska landsliðið í æfingaleik gegn Bandaríkjunum eftir magnaðan feril. Hann er markahæsti leikmaður í sögu liðsins.
,,Ef við hefðum haft þessa leikmenn áður, þá hefði kannski gengið betur. Þeir eru betur þjálfaðir, skilja leikinn betur og eru betri í taktík. Þjálfarar eins og Guardiola og Klopp eru að hjálpa ungum leikmönnum mikið,“ sagði Rooney.
,,Ég veit að það er oft rætt um erlenda stjóra en ég held að þeir hafi hjálpað leikmönnum eins og Sterling, Walker og fleirum.“