Það ýmislegt sem finnst í safninu á RÚV. Eyjamenn verða meðal annars til umfjöllunar í Tímavélinni í Íþróttafólkinu okkar sem er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 21.30.
Þar verður rifjað upp hið fræga stuðningsmannalag sem Ívar Bjarklind og Leifur Geir Hafsteinsson gerðu. Komum fagnandi er spilað í flestum góðum samkomum.
Þar spilar ÍBV í sjónvarpssal og þar vekur mesta athygli að Heimir Hallgrímsson er á trommunum.
Heimir varð síðar landsliðsþjálfari Íslands og kom liðinu í fyrsta sinn á EM og HM í knattspyrnu.
Heimir er eitt af óskabörnum þjóðarinnar eftir það afrek en hann er nú í leit að nýju starfi og spurning hvort hann grípi í kjuðana.
Umrætt innslag má sjá hér að neðan.