Luka Modric, leikmaður Real Madrid, segir að hann sé enn í sambandi við fyrrum liðsfélaga sinn, Cristinao Ronaldo.
Talað var um að samband Modric og Ronaldo væri ekki gott nýlega eftir skipti Portúgalans til Juventus. Það er þó ekki rétt.
,,Við eyddum sex frábærum árum saman í Madríd þar sem vinátta okkar varð sterk sem og virðingin,“ sagði Modric.
,,Nú er hann farinn en við sendum hvorum öðrum enn skilaboð. Þó að sumir segi að það sé ekki þannig þá get ég staðfest það að við erum í bandi.“
Modric var svo spurður út í Lionel Messi, leikmann Barcelona og segir að hann muni aldrei spila með Argentínumanninum.
,,Ég spila gegn honum, ekki með honum. Hann er augljóslega einn sá besti í sögunni en ég mun aldrei spila með honum.“