David de Gea, markvörður Manchester United, er ekki að flýta sér að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Enskir miðlar greina frá þessu í kvöld en De Gea er einn af 11 leikmönnum United sem verður samningslaus næsta sumar.
De Gea hefur áhuga á að krota undir nýjan samning en vill sjá hvernig vandamál félagsins verða leyst fyrst.
Það hafa komið upp ýmis vandamál hjá United á tímabilinu og er samband stjórans, Jose Mourinho við suma leikmenn ekki gott.
De Gea vill sjá hvort félagið nái að leysa úr þessum vandamálum áður en hann skrifar undir framlengingu.
Einnig er greint frá því að Paris Saint-Germain fylgist vel með gangi mála og hefur áhuga á að næla í De Gea ef hann ákveður að fara.