Rubin Kazan tók á móti FC Rostov í rússnesku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Það var Christian Noboa sem kom Kazan yfir á 40. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Sergey Parshivlyuk jafnaði hins vegar metin fyrir Rostov á 67. mínútu og lokatölur því 1-1.
Þeir Sverrir Ingi Ingason og Ragnar Sigurðsson vori báðir í byrjunarliði Rostov í dag og spiluðu allan leikinn í harta varnarinnar en Björn Bergmann var ekki með.
Rostov er í ellefta sæti deildarinnar með 31 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.