Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og var þeim að ljúka núna rétt í þessu.
Liverpool vann 2-1 sigur á Manchester City þar sem að þeir Mohamed Salah og Roberto Firmono skoruðu mörk Liverpool og liðið er því komið áfram í undanúrslit keppninnar.
Roma vann svo ótrúlegan 3-0 sigur á Barcelona sem þýðir að Barcelona er úr leik í keppninni í ár þar sem að fyrri leik liðanna lauk með 4-1 sigri Barcelona og Roma fer því áfram á útivallarmarki.
Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Manchester City 1 – 2 Liverpool* (Samanlegt 1 – 5)
1-0 Gabriel Jesus (2′)
1-1 Mohamed Salah (56′)
1-2 Roberto Firmino (77′)
*Roma 3 – 0 Barcelona (Samanlegt 4-4)
1-0 Edin Dzeko (6′)
2-0 Daniele De Rossi (víti 58′)
3-0 Konstantinos Manolas (82′)