Virgil van Dijk er mættur í herbúðir Liverpool en er þó ekki í hóp gegn Burnley í dag.
Van Dijk tók létta æfingu á Melwood æfingasvæðinu í gær.
Miðvörðurinn er dýrasti leikmaður í sögu Liverpool en félagið borgaði Southampton 75 milljónir punda fyrir hann.
Van Dijk mun spila sinn fyrsta leik á næstunni en áhugavert verður að sjá hvernig honum mun vegna.
Myndir af honum eru hér að neðan.