fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Mannvonska í sinni verstu mynd

Dæmdur í 100 ára fangelsi fyrir að drekkja stjúpdóttur sinni

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 25. september 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upptökur úr eftirlitsmyndavélum urðu til þess að karlmaður var dæmdur í hundrað ára fangelsi fyrir að drekkja þriggja ára stjúpdóttur sinni.

Atvikið átti sér stað við hótel í borginni Morelia í Mexíkó í ágúst á síðasta ári. Maðurinn hafði verið að gæta stjúpdóttur sinnar á meðan móðir hennar lagði sig.
Þegar hún vaknaði kom hún að dóttur sinni meðvitundarlausri fyrir framan sjónvarpið á hótelherbergi fjölskyldunnar. Hún var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi við komuna þangað og kom þá í ljós að banamein litlu stúlkunnar var drukknun.

Við rannsókn málsins fór lögregla yfir upptökur úr öryggismyndavélum við umrædda sundlaug. Óhætt er að segja að átakanlegt hafi verið fyrir lögreglu að sjá það sem fyrir augu bar. Á upptökunum sást stjúpfaðir stúlkunnar, Jose David að nafni, henda henni út í laugina, skilja hana þar eftir og draga hana upp nokkrum sekúndum síðar. Stúlkan var að sjálfsögðu ósynd og þennan leik lék hann í nokkur skipti. Athygli vekur að aðrir sundlaugargestir gerðu ekkert til að stöðva manninn.

Myndbandið var birt opinberla á síðasta ári og vakti meðferð mannsins á stúlkunni – og viðbragðsleysi annarra sundlaugargesta – mikla hneykslan.

Saksóknarar höfðu farið fram á að Jose yrði dæmdur í 40 ára fangelsi, en dómari ákvað að fara eigin leið og dæmdi hann í hundrað ára fangelsi. Jose mun ekki geta sótt um reynslulausn og mun deyja á bak við lás og slá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu