fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Patty og Baldur standa að Skemmtilegs

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 3. ágúst 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Gallery Port stendur nú yfir sýningin Skemmtilegs sem listahjónin standa í sameiningu að. Á sýningunni getur á að líta fjölbreytt úrval verka, bæði olíumálverk og teikningar Baldurs og keramikskúlptúra Pattyar. Verkin byggjast á sjónrænni skynjun þeirra á hversdagslegum fyrirbrigðum og óhlutbundnum verum en þau Patty og Baldur sækja innblástur í kvikan skurðpunkt dægurmenningar, félags- og siðfræðistefna, þróunarsálfræði og dulhyggju.

 

Baldur fæst í verkum sínum við mannveruna og túlkar hana stundum í nær óhlutbundinni naumhyggju en líka í villtri tjástefnu þrástefja. Verk hans vega salt á milli angistar og kímni en undir yfirborði viðfangsefnanna er að finna öflugan straum mennsku og mannúðar í skopmyndastíl.

 

Handunnir skúlptúrar Pattyar sýna kvenleg form í skoplegum stíl og hráan raunveruleika þess að reyna að viðhalda öflugri sjálfsvitund, samtímis því að þurfa bæði að bjóða mjólk og huggun. Öll verkin sýna konu okkar daga með brjóstin berskjölduð, þykkar varir og stýfða handleggi en þannig er áhersla lögð á hlutverk hennar sem viðfangs. Patty leitast ekki við að móta gallalausa og tímalausa nakta ímynd heldur gætir þess að innsta togstreita endurspeglist í því sem við augum blasir. Yfirborðið er ýmist matt eða glansandi, ólgandi eða slétt og þetta, í bland við afmyndaða andlitsdrættina, dregur ekki dul á öngþveitið. Verurnar skarta oft slaufum og bólginni kvenlegri hárgreiðslu til þess að sýnast en það undirstrikar einungis að útilokað er að dæma fólk eftir útlitinu einu saman.

 

Patty hefur einnig unnið röð samstæðra verka um vinsæl matvæli í því skyni að rannsaka íslenska umhverfið.

 

Patty og Baldur unnu verkin á sýningunni í vinnustofu sinni í Chicago þar sem þau búa og starfa. Þetta er önnur sýning Baldurs í Gallery Port og fyrsta sýning Pattyar á Íslandi.

Sýningin stendur til 9. ágúst næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“