Í kjölfar þess að hafa fengið að minnsta kosti fimm nektarmyndir, typpamyndir, sendar í gegnum samfélagsmiðla án þess að hafa óskað eftir þeim lagði móttakandinn fram kæru hjá lögreglunni. Lögreglan tók málið til rannsóknar og það endaði með að ákæra var gefin út á hendur 18 ára pilti fyrir að hafa sent þessar myndir.
Þingréttur í Halmstad í Svíþjóð hefur nú sakfellt piltinn fyrir kynferðisbrot auk brots gegn vopnalögum. Hann viðurkenndi brot sín og þarf að greiða móttakanda myndanna 7.000 sænskar krónur í miskabætur. Hallandsposten skýrir frá þessu.