Ökumaður keyrði fram hjá Háteigsskóla í Reykjavík í morgun án þess að vera búinn að skafa rúðurnar á hlið bílsins. Foreldri barns við skólann tók myndirnar í morgun og gaf DV góðfúslegt leyfi til að birta.
„Þetta var fyrir utan Háteigsskóla í morgun. Við höfum margoft talað um umferðaröryggi fyrir utan skólann en þetta setti alveg punktinn yfir i-ið,“
sagði foreldrið í samtali við DV. „Manneskjan keyrði ekki inn á planið við skólann heldur keyrði fram hjá. Þetta var einhver að flýta sér.“
Samkvæmt reglugerð geta ökumenn sem keyra um með hélaðar rúður fengið sekt upp á 20 þúsund krónur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ítrekað bent ökumönnum á að skafa rúðurnar, sérstaklega á dögum sem þessum þar sem flestir ökumenn þurfa að skafa. Árið 2015 sagði almennur borgari á Fésbókarsíðu Lögreglunnar að Íslendingar hafi ekki tíma til að skafa, lögreglan svaraði þá um hæl:
„Það hafa allir tíma í það. Það hefur hinsvegar enginn tíma í að klessa á, vegna þess að viðkomandi sá ekkert.“