Klukkan að verða fimm í nótt var tilkynnt um alvarlega líkamsárás í miðbænum. Maður sleginn í höfuðið og lá hann meðvitundarlaus í götunni. Árásarmaðurinn fór af vettvangi en náðist skömmu síðar.
Í skeyti lögreglu segir:
„Hann er einnig grunaður um að hafa í millitíðinni slegið annan mann í andlitið og jafnvel nefbrotið þann mann. Árásarmaðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Ekki er vitað frekar um meiðsl árásarþola.“