fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Englands óhamingju verði allt að vopni

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 14. júlí 2018 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Englendingar eru í sárum eftir að knattspyrnulið þeirra beið lægri hlut fyrir Króötum í undanrásum heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Fimmtíu og tvö ár voru liðin frá því að enskt landslið spilaði úrslitaleik mótsins en þá hömpuðu Englendingar titlinum eins og frægt er. Biðin lengist því enn fyrir ensku þjóðina sem þarf að gera sér óspennandi leik um þriðja sætið við Belgíu að góðu.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Englendingum því á 12.-13. júlí mun Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, koma í opinbera heimsókn og funda með helstu ráðamönnum þjóðarinnar. Segja andstæðingar Trump að ekki sé til grimmari refsing en heimsókn forsetans eftir reiðarslagið í Moskvu. Englands óhamingju verði allt að vopni.

Fær ekki að snæða í Buckingham-höll

Heimsókn Trumps hefur mætt mikilli andstöðu frá því að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, bauð honum til landsins þegar hún heimsótti Hvíta húsið í janúar síðastliðnum. Í ljósi andstöðunnar var horfið frá því að öllu yrði tjaldað til við heimsóknina, eins og kvöldverði í Buckingham-höll og skrúðgöngu í miðbænum, en þess í stað er heimsóknin titluð sem „vinnuheimsókn“. Mun Trump meðal annars funda með May og hitta Elísabetu drottningu á stuttum fundi áður en hann flýgur úr landi.

Þegar May bauð Trump í heimsókn var tilgangurinn meðal annars sá að tryggja hollustu hans og Bandaríkjanna við samherja sína í NATO. Mikið vatn hefur síðan runnið til sjávar og hægt er að færa rök fyrir því að heimsóknin gæti ekki komið á verri tíma fyrir breska forsætisráðherrann. May berst nú fyrir pólitísku lífi sínu heima fyrir eftir að hafa tilkynnt umdeilda Brexit-áætlun sína og afsögn tveggja ráðherra, þeirra David Davis og Boris Johnson. Sá síðastnefndi er sagður leiða uppreisn Brexit-sinna gegn May.

Donald Trump og Theresa May ræða saman.

Vill hitta vin sinn Boris Johnson

Þá var Trump samur við sig á Nato-fundi í Brussel í vikunni. Móðgaði hann verðandi gestgjafa sína  með því að segja að landið væri í upplausn vegna Brexit og að hann vonaðist til þess að hitta vin sinn, títtnefndan Boris Johnson, á meðan heimsókn hans stæði yfir. Þá sagði hann að viðræður við Vladimir Putin, forseta Rússlands, yrðu auðveldari en viðræður við May og aðra leiðtoga NATO-ríkja. Þá féllu ummæli hans um að Þýskaland væri í heljargreipum Rússlands útaf því hversu háðir Þjóðverjar eru gasi frá Rússlandi í grýttan jarðveg.

 

Boris Johnson. Ráðherrann fyrrverandi er sagður leiða uppreisn Brexit-sinna gegn Theresu May.

Orðum Trumps var ekki vel tekið enda eru leiðtogar NATO-ríkjanna í fullkominni óvissu um hvort Bandaríkin, undir hans stjórn, myndu halda grundvallargildi sambandsins í heiðri ef Vladimir Putin og Rússar færa sig upp á skaftið, það er að árás á eitt NATO-ríki jafngildi árás á þau öll. Trump fer ekki leynt með að hann vill að G7-ríkin svokölluðu hleypi Rússum aftur inn í hópinn sem er nánast útilokað fyrir May í kjölfar þess að Rússar eru sakaðir um taugaeitursárásina í Salisbury á dögunum.

Það verður því fróðlegt að fylgjast með hvernig heimsókn Trump til Bretlands heppnast. Hún verður söguleg nánast hvernig sem hún fer. Eins og áður segir mætir heimsóknin mikilli andstöðu í Bretlandi. Búist er við fjölmennum mótmælum gegn Trump hvar sem hann stígur niður fæti.

Enginn hefur þó gengið lengra en ónefndur listamaður sem borgaði enskum bónda hátt gjald fyrir afnot af kornakri einum. Hafði listamaðurinn reiknað það út að allar líkur væru á því að flugvél Trump myndi fljúga yfir svæðið og þar með væri kominn fullkominn „náttúrulegur strigi“ fyrir listamanninn til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri. Ekki ert hægt að segja að þessi einstaklingur hafi ákveðið að búa til eitthvað tímalaust meistaraverk heldur lét hann einföld textaskilaboð duga: „Блядь Trump“. Rússneska orðið þýðir bókstaflega „hóra“ en er í rússnesku notað á sama hátt og enska orðið „fuck“. Svo mörg voru þau orð.

 

Listamaðurinn greiddi háa fjárhæð til þess að koma skilaboðunum „Блядь Trump“ á framfæri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv