Maður og kona voru á dögunum dæmd í tveggja mánaða fangelsi í héraðsdómi Vestfjarða fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot sem þau frömdu bæði saman og í sitt hvoru lagi. Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa stolið bjórkútum frá veitingastöðum í bænum og fyrir að hafa stolið ýmsum verðmætum úr vösum yfirhafna í fatahengi Ísafjarðarkirkju. Á meðan var konan sakfelld fyrir að hafa meðal annars áfengi af veitingastað og matvælum úr bakaríi.
Brotin framdi parið bæði saman og í sitt hvoru lagi. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa að kvöldi 4. eða aðfaranótt 5. september 2017, þegar hann stal 25 lítra bjórkút af gerðinni Egils Gull af veitingastaðnum Edinborg Bistró á Ísafirði og kom honum fyrir við sorptunnur húss og fór síðan með hann heim til sín en kúturinn fannst þar við húsleit lögreglu þann 6. september 2017. Sömuleiðis stal hann 30 lítra bjórkút frá veitingastaðnum Húsinu og fór með hann heim til sín.
Þá var hann ákærður fyrir að hafa að að kvöldi 11. desember 2017, í fatahengi Ísafjarðarkirkju, að Sólgötu 1 á Ísafirði, stolið úr vösum yfirhafna ýmsum verðmætum frá nokkrum aðilum, meðal annars tveimur greiðslukortum, bíllyklum, farsíma, seðlaveski og varalit.
Konan var ákærð fyrir að hafa að kvöldi miðvikudagsins 11. apríl 2018, farið inn í veitingasal veitingastaðarins Við Pollinn á Hótel Ísafirði, við Silfurtorg 2 á Ísafirði og stolið þaðan þremur léttvínsflöskum, alls að andvirði kr. 15.900, og farið með þær út af hótelinu, en starfsmaður hótelsins elti hana uppi og endurheimti flöskurnar fyrir utan hótelið.
Þá var hún ákærð fyrir húsbrot og þjófnað fyrir að hafa í félagi við fyrrnefndan ónafngreindan aðila farið inn um bakdyr Bakarans ehf. að Hafnarstræti 14 á Ísafirði og stolið þaðan, úr kæli fyrir innan dyrnar, tveimur pakkningum af osti, einni öskju af smjöri og tveimur flöskum af safa, alls að andvirði kr. 2.790, en lögreglan stöðvaði för þeirra skömmu síðar við Norðurveg þar sem vörurnar voru enduheimtar.
Þá voru maðurinn og konan bæði ákærð fyrir að hafa í sameiningu, föstudaginn 29. september 2017, stolið mat- og drykkjarvöru úr verslun Bónus að Nýbýlavegi 4 í Kópavogi, nánar tiltekið sjö bökkum af bleikjuflökum, 19 bökkum af kjúklingabringum, tveimur hálfslítra flöskum af Tonic vatni, og 12 hálfslítra dósum af Pilsner, alls að fjárhæð kr. 45.519. Annar ónafngreindur aðili tók einnig þátt í ráninu.
Þáttur ónafngreinda aðilans í hinu sameinaða máli var skilinn frá málinu og dæmt um hann í sérstöku máli.
Bæði maðurinn og konan játuðu sök fyrir dómi og hlutu tveggja mánaða fangelsisdóm hvort. Jafnframt er þeim gert að greiða Högum hf. skaðabætur óskipt að upphæð 45.519 krónur.
Refsing mannsins er skilorðsbundinn en fram kemur í niðurstöðu dómsins að hann sé með hreint sakavottorð. Konan hefur hins vegar tvisvar á liðnu ári sætt refsingu vegna brots gegn 244. gr. almennra hegningarlaga. Því þótti ekki tilefni til að skilorðsbinda fangelsisdóm hennar.