fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Ég er ekki lengur reið“

Landlæknir viðurkennir læknamistök á Læknavaktinni sem áttu sér stað í nóvember 2016–Gaf grænt ljós á 30 klukkustunda ferðalag þrátt fyrir einkenni sem bentu til blóðtappa í fæti

Kristín Clausen
Sunnudaginn 16. júlí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég ætla ekki að kæra niðurstöðuna. Ég er sátt núna.” Þetta segir Dayna Alves en hún ásakaði, fyrir hönd móður sinnar, Önu Mariu Alves, lækni á Læknavaktinni í Kópavogi um meint læknamistök sem hún segir að hefðu getað kostað móður hennar lífið. Atvikið átti sér stað í nóvember 2016 en þá yfirsást heimilislækninum sem skoðaði Önu þrír blóðtappar í fæti hennar. Dayana kvartaði í framhaldinu til Embættis landlæknis vegna meintra mistaka við veitingu á heilbrigðisþjónustu hjá Læknavaktinni. Þann 29. júní síðastliðinn fékk hún loks fullnægjandi svar við kvörtuninni. Niðurstaða Birgis Jakobssonar landlæknis í málinu er sú að mistök hafi átt sér stað.

Fótleggurinn bólgnaði

Mamma hefur það fínt í dag. Það skiptir mig mestu máli.”

Forsaga málsins sem DV fjallaði um í lok febrúar 2017 er sú að Ana Maria Alves sem er búsett í Brasilíu, hafði dvalið hjá dóttur sinni, Dayönu Alves og tengdasyni, Knúti Einarssyni, í tæpa þrjá mánuði þegar annar fótleggur hennar byrjaði að bólgna fjórum dögum áður en hún átti flug aftur heim til Brasilíu. Bólgan og verkirnir stigmögnuðust með hverjum deginum sem leið. Kvöldið áður en Ana átti að mæta í flug fóru þær Dayana á Læknavaktina í Kópavogi þar sem þær vildu fullvissa sig um að Ana væri nógu heilsuhraust til að fara í flugferðirnar fjórar sem hún átti bókaðar í til að komast til síns heima í Brasilíu.

Læknirinn sem tók á móti Önu á Læknavaktinni mældi blóðþrýsting og gaf henni parkódín vegna verkja í fæti. Ekki var minnst á að hún gæti verið með blóðtappa. Þá var hún heldur ekki send í frekari rannsóknir. Önu var heldur ekki ráðlagt að fresta flugferðinni en læknirinn ráðlagði henni hvernig ætti að fyrirbyggja blóðtappa.

Ferðaðist til Brasilíu

Nokkrum vikum áður en Ana hélt úr landi.
Mægðurnar á Íslandi Nokkrum vikum áður en Ana hélt úr landi.

Önu beið 30 klukkustunda ferðalag morguninn eftir. Strax í fyrstu flugferðinni jókst bólgan í fætinum. Þegar hún komst loks á leiðarenda var fóturinn orðinn svo stokkbólginn að Ana gat með engu móti stigið í hann. Henni var samstundis ekið á sjúkrahús þar sem brasilískir læknar fundu þrjá blóðtappa í fætinum. Þeir segja kraftaverk að Ana skyldi lifa ferðalagið af.

Dayönu og Knúti var mjög brugðið þegar þau heyrðu hversu alvarleg veikindi Önu voru. Í framhaldinu lögðu þau fram formlega kvörtun til Embættis landlæknis. Fyrsta svarið sem þau fengu frá embættinu, í febrúar 2017, var að þeirra mati ófullnægjandi. Þau héldu fast við að málið væri skýrt dæmi um grafalvarleg læknamistök. Því öfluðu þau sér frekari gagna í málinu sem var í framhaldinu tekið til endurskoðunar.

Gerði ekki nóg

Ekkert verður afráðið um það hvenær blóðtappamyndun hafi átt sér stað, hvort það var fyrir eða í umræddri flugferð.

Niðurstaða í málinu sem er dagsett þann 29. júní síðastliðinn, er sú að læknirinn sem tók á móti Önu á Læknavaktinni þann 20. nóvember 2016 hafi ekki gert nóg fyrir hana. Í áliti landslæknis vegna kvörtunarinnar segir meðal annars:

„Alþekkt er að blóðtappaáhætta er mjög aukin í löngum flugferðum og því meiri sem flugið er lengra. Hér var um að ræða fyrirhugað flug til Brasilíu með allmörgum millilendingum. Bjúgur og bólga á öðrum ganglim, en ekki báðum, bendir mjög sterklega til aukinnar áhættu á blóðtappamyndun. Ekkert verður afráðið um það hvenær blóðtappamyndun hafi átt sér stað, hvort það var fyrir eða í umræddri flugferð.”

Niðurstaða landlæknis í málinu var því sú að rétt hefði verið að vísa Önu til frekari rannsókna á ganglim áður en samþykkt hefði verið að hún færi í svo langa og erfiða flugferð.

Sátt við niðurstöðuna

Sættir sig við niðurstöðuna.
Dayana Alves Sættir sig við niðurstöðuna.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þá segir landlæknir að honum sé kunnugt um þau þröngu mörk sem sjúklingafjöldi og tímaskortur setur vinnu á Læknavaktinni. Samt sem áður verði að gera þá kröfu að læknar þar geti greint alvarlega sjúkdóma á byrjunarstigi og gripið til viðeigandi ráðstafana. Því telur landlæknir að lækninum hafi orðið á mistök.

Blaðamaður DV náði tali af lækninum sem kveðst lítið geta tjáð sig um málið. Hann harmar mistökin. Að sama skapi segir hann að möguleikinn á að svona mistök geti gerst sé alltaf fyrir hendi. „Þetta er í sjálfu sér ekki auðveld greining. Margir koma með bjúg á fótum og yfirleitt er ástæðan annars eðlis en blóðtappi.”

Dayana er sátt við niðurstöðuna í málinu. Hún ætlar ekki að kæra málið og vonast til þess að það verði til þess að læknar vandi sig betur í framtíðinni. „Það er fáránlegt að fara til læknis og fá ekki almennilega skoðun. Mamma mín hefði getað dáið. Þetta fór vel að lokum og mamma hefur það fínt í dag. Það skiptir mig mestu máli.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv