Matvælastofnun kom svöngum og einmana hana til bjargar eftir að tilkynning barst um hann fyrir skemmstu. Haninn virðist hafa orðið eftir í ónefndu fjárhúsi eftir að eigendur höfðu hætt búskap og flutt erlendis.
Í tilkynningu frá Matvælastofnunkemur fram að eftir mikið klifur og basl hafi tekist að handsama hann. „Hann var orðinn nokkuð grannur en fékk nóg að éta og drekka enda svangur og þyrstur eftir veruna í fjárhúsinu. Að öðru leyti var hann í góðu ástandi,“ segir í tilkynningunni.
Haninn dvelur nú í góðu yfirlæti í húsdýragarðinum að Hraðastöðum í Mosfellsdal þar sem fyrir eru nokkrar hænur og yngri hanar. „Þar fær hann að fara út með nýju félögunum og virtist pluma sig vel.“