Veður fer nú versnandi á sunnan og suðvestanverðu landinu. Vindur undir Hafnarfjalli er nú 44 metrar á sekúndu í hviðum, auk þess sem á veginum er hálka. Vegurinn um Kjalarnes er lokaður en þar slá hviður upp í um 30 metra. Vegurinn yfir Mosfellsheiði er lokaður sem og Nesjavallaleið. Þá hefur Vegagerðin lokað veginum um Hellisheiði en þar er meðalvindraði um 16 metrar á sekúndu.
Reykjanesbrautin er opin, samkvæmt vef Vegagerðarinnar en fólk hefur þó verið ráðið frá því að ferðast að óþörfu.
Af öðrum leiðum má nefna að lokað er um þjóðveg 1 frá Hvolsvelli að Vík. Veðurstöðin að Hammi undir Eyjafjöllum hefur mælt hviður yfir 40 metra á sekúndu.
Vaxandi suðaustanátt, 20-28 m/s suðvestantil upp úr hádegi, en norðaustantil undir kvöld. Lægir nokkuð suðvestanlands seint í dag, en norðaustantil um miðnætti. Snjókoma eða slydda og síðar slydda eða rigning. Mikil rigning eða slydda suðaustantil og á Austfjörðum þegar líður á daginn. Suðvestan 10-18 í nótt og él vestantil, en rigning fyrir austan. Áfram él á morgun, en léttir til fyrir austan. Heldur hægari seint á morgun. Hlýnandi veður í dag, hiti 0 til 6 stig í kvöld, en frystir víða á morgun.
Fyrir ausatn er lokað um Öxi og Oddsskarð. Ófært er um Hellisheyði eystri og Vatnsskarð eystra. Hólasandur, á milli Húsavíkur og Mývatns er lokaður.
Á Vestfjörðum eru helstu fjallvegir ófærir. Ófært er um Þröskulda, Dynjandisheiði, Hrafnseyrarheiði. Bíldudalsvegur er ófær.
Á Vesturlandi er ófært um Fróðárheiði en fært um Vatnaleið og fyrir jökul. Holtavörðuheiði er enn opin.