Kynntist Birnu þegar hann heimsótti Ísland í fyrra
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um leitina að Birnu Brjánsdóttur og meðal þeirra er Aftonbladet í Svíþjóð. Blaðið ræddi við sænskan vin Birnu, Felix Breidenskog, í dag en hann kynntist henni þegar hann heimsótti Ísland í apríl í fyrra.
„Við vörðum tíma okkar með henni og vinum hennar og fórum á skemmtistaðinn sem hún var á á föstudagskvöld,“ segir Felix og vísar í skemmtistaðinn Húrra í miðborg Reykjavíkur.
„Við vorum bara vinir en þegar ég fór aftur til Svíþjóðar héldum við sambandi. Til að byrja með heyrðumst við nokkrum sinnum í viku en það eru nokkrir mánuðir síðan ég heyrði í henni síðast.“
Í viðtali við Aftonbladet segir hann að sér hafi brugðið þegar hann heyrði að Birnu væri saknað. „Ég trúði þessu ekki. Hún er mjög ljúf og það er ekkert illt í henni,“ segir hann og bætir við að Birna hafi gaman af því að kynnast fólki frá öðrum löndum. „Hún er vinmörg og hefur gaman af því að kynnast nýju fólki,“ segir hann.
Ljóst er að óhug setur að fleirum en Íslendingum vegna málsins og hafa fjölmiðlar á Norðurlöndunum; Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum þar á meðal, fylgst grannt með gangi mála. Þá hafa fjölmiðlar annarsstaðar í Evrópu, til að mynda í Frakklandi, fjallað um málið.