Síðast vitað um ferðir hennar við Setbergsskóla í dag
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karitas Freyju Hallgrímsdóttur, 8 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar við Setbergsskóla í Hafnarfirði á fjórða tímanum í dag.
Karitas, sem er einhverf, er há og grönn, ljóshærð með sítt slétt hár. Hún er klædd í dökkar buxur, ljósan gallajakka, svartan bol með bleikum stöfum og fjólubláa hummelskó.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Karitas, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um hringja strax í lögreglu í síma 112.
Uppfært – Karitas er fundin