Guðni Th. Jóhannesson mælist með tæplega 60% fylgi í nýrri könnun Maskína. Davíð Oddsson er með 19% og Andri Snær Magnason um 15%. Bæði Davíð og Andri Snær hækka frá síðustu könnun Maskínu en Davíð hækkar þó mest allra frambjóðenda. Halla Tómasdóttir mælist með 3-4%. 839 svöruðu könnun Maskínu og voru svarendur af báðum kynjum.
Í skeyti Maskínu kemur fram að þrefalt fleiri karlar en konur styðja Davíð en Guðni á marktækt meiri stuðning meðal kvenna en karla. Þá ætla fleiri konur en karlar einnig að kjósa bæði Höllu og Andra Snæ.
Andri Snær sækir mest fylgi til yngstu kjósenda en Davíð á mest fylgi á meðal þeirra sem eru 55 ára og eldri.