fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

320 milljarða króna útboð Seðlabankans verður 16. júní

Aflandskrónueigendum býðst að selja eignir sínar á genginu 190 til 210 fyrir hverja evru

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. maí 2016 21:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aflandskrónueigendum býðst að selja eignir sínar í skiptum fyrir reiðufé í erlendum gjaldeyri á genginu 190 til 210 krónur fyrir hverja evru í gjaldeyrisútboði Seðlabankans. Fer útboðið fram, eins og upplýst var fyrst um í DV, fimmtudaginn 16. júní næstkomandi en eigendur aflandskróna að fjárhæð tæplega 320 milljarða geta tekið þátt í útboðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum en útboðsfyrirkomulagið verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði (e. single price). Þá mun verð seldra evra í gjaldeyrisútboði Seðlabankans ráðast af þátttöku í útboðinu. Þannig fá aflandskrónueigendur, líkt og áður hefur verið greint frá í DV, hagstæðara útboðsgengi ef fleiri aðilar kjósa að taka þátt í útboðinu og þá um leið eru auknar líkur á því að ekki verði neinar eftirlegukindur (e. hold-outs) í hópi aflandskrónueigenda eftir að útboðinu lýkur um miðjan næsta mánuð.

Aflandskrónuútboðið er næsta stóra skrefið – hið fyrsta var uppgjör slitabúa gömlu bankanna – í heildstæðri áætlun stjórnvalda um losun hafta sem var fyrst kynnt í Hörpu í júní á síðasta ári. Samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra um meðferð aflandskrónueigna, sem var samþykkt á Alþingi síðastliðið sunnudagskvöld, er aflandskrónueigendum gert að sæta afarkostum þar sem þeim býðst að skipta á krónueignum sínum í evrur í fyrrnefndu útboði Seðlabankans ella að fjármunir þeirra verði fluttir á læsta reikninga sem bera 0,5% vexti og endurskoðaðir á tólf mánaða fresti af Seðlabankanum.

Í frumvarpi fjármálaráðherra er gert ráð fyrir því að þeir aflandskrónueigendur sem taka ekki þátt í útboðinu og enda með fjármuni sína á læstum lágvaxtareikningum fái engu að síður tímabundna heimild – frá 1. september til 1. nóvember 2016 – til þess að eiga í gjaldeyrisviðskiptum við Seðlabankann þar sem viðmiðunargengið verður 220 krónur gagnvart evru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv