Twitter-notendur héldu ekki vatni yfir flutningnum
Högni Egilsson, kenndur við Hjaltalín, frumflutti sína eigin útgáfu af Eurovision-slagara Selmu Björnsdóttur, All Out of Luck, á undanúrslitakvöldi Söngvakeppninnar í kvöld.
Óhætt er að segja að Högni, sem flutti lagið ásamt söngkonunni Glowie, hafi sigrað hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar ef marka má viðtökurnar á samfélagsmiðlum. Enda verður að segjast að útgáfan hafi verið afar vel heppnuð.
Selma frumflutti lagið í Eurovision árið 1999 og hafnaði það í öðru sæti lokakeppninnar með 146 stig á eftir Svíum. Það var besti árangur Íslands í keppninni þar til Jóhanna Guðrún jafnaði hann árið 2009.
Búast má við að útgáfa Högna muni heyrast á öldum ljósvakans á næstu vikum við álíka vinsældir og upprunalega útgáfan.
Hér að neðan má sjá það sem menn höfðu að segja um flutning Högna á Twitter.
Högni gæti sungið textann utan á Cheerios pakka og gert það geggjað?? #12stig
— Hildur Hjörvar (@hhjorvar) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Tryllt útsetning hjá Högna og Glowie gæsahúð alla leið loksins #12stig
— Ragnheidur Birgis (@RagnheidurB) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Ég er ennþá pínu að gráta yfir flutningi Högna og Glowie. ÞETTA VAR SVO FALLEGT!!! #12stig
— Ingileif Fridriks (@ingileiff) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Högni breytir vatni í vín #12stig pic.twitter.com/Y2sUn7EZxJ
— Páll Pétursson (@pallpeturs) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
"Pabbi, er þetta engill?" #12stig #pabbatwitter pic.twitter.com/FdWv3BoDGw
— Reynir Jónsson (@ReynirJod) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Sjúlluð útsetning og flutningur hjá Högna og Glowie- langbesta stöffið í keppninni í ár #12stig
— Björg Baldursdóttir (@BjrgBaldursdtti) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Þetta cover. Ég ætlaði að klappa og öskra heima í stofu #12stig
— Aðal einhyrningurinn (@hildurthora) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
12stig Högni #12stig
— atlith (@thorst75) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Lögin í keppninni voru dæmd ómerk með þessu rendition frá H. og co. Senda þetta tríó út, engin mun fatta þetta rehash. #12stig
— hrafn (@hrafn) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Það rennur tár. Högni, hvað er að frétta? #12stig
— Aðalsteinn (@adalsteinnk) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Högni vinnur #12stig
— Eythor Gunnarsson (@eg61) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Áhrif þessa lags margfölduðust um leið og Högni settist þarna. Allt í einu meikar þetta bara allt sense #12stig
— Silla Jonsdottir (@LadyGrimsson) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Högni minn – þú komst við hjartað í mér #12stig
— Stefán Eiríksson (@StefanEiriks) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Ok, þetta er geggjað. Högni da gawd ? #12stig
— Stígur Helgason (@Stigurh) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Högni…. sá eini sem verðskuldar 12 stig…líkt og Palli síðustu helgi #12stig
— Helena Pálsd. (@MrsHebs) February 13, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
101 Boys voru nettir.
Högni og Glowie voru nett.
Af hverju sendum við ekki eitthvað svona nett út?#12stig— Krummi (@hrafnjonsson) February 13, 2016